Þessi líka ágætis Verslunarmanna helgi að líða undir
lok, róleg og yfirveguð eins og þær gerast bestar að mínu mati,
hef aldrei verið fíkill þegar kemur að þessari helgi, aldrei átt
við það vandamál að stríða að þyrsta í subberíið og lætin í
Eyjum og hef ég alveg komist af án þess að hafa nokkun tíma
farið þangað. Finnst enn ekkert heilla mig við Þjóðhátíð,
kannski of mikil snobb-borgar barn sem þolir illa mannþröng,
óþrifnað og mikla drykkju, þetta þrennt aldrei verið á mínum
óskalista...... En fannst bróðir minn í dag koma með
ágætishugmynd, sem jafnvel ég væri til í að skoða. Fara
einhverntíma bara á sunnudeginum, hafa það gott yfir daginn,
skemmta sér um kveldið og nóttina og fara svo heim undir morgun,
heim í kósí rúm að sofa, ekkert tjald, ekkert vesen og ekkert
sem hugsanlega gæti átt sinn þátt í að eyðisleggja stundina (
aldrei að segja aldrei ) en annars færi ég ekki yfir nótt nema
gista á besta staðnum í bænum, hver svo sem hann er.... Annað,
líka eftir að maður eignaðist börn urðu útihátíðir eitthvað
annars flokks dæmi sem maður skoðar með öðrruvísi hugarfari en
þegar maður var yngri.... En auðvitað var allt annað mál með
þessa helgi í fyrra, lét mig hafa það að gista í tjaldi og þurfa
að pissa á kamri, troðast í þrenglsum og annað sem ég vanalega
læt ekki plata mig útí, enda hvað gerir daman ekki fyrir að sjá
Sigurrós spila, ALLT. Var líka busy við turtildúfu leikinn með
Helganum mínum svo þetta var allt saman eitthvað svo
ógleymanlegt. Ef Eyjar væru Sigurrós í Ásbyrgi þá færi
ég
Annars höfum við bara
verið að hafa það ljúft um helgina hér litla fjölskyldan. Við Helgi
fórum í Leiknisgrill á föstudag til þess ágætispilts Ása liðstjóra,
þar sem aðalega var fagnað nýjum tíðindum um nýjan þjálfara, gaman
að sjá þessa meistara svo spennta og metnaðarfulla saman komna og
að springa úr tilhlökkun, enda stórgott lið og eiga ekkert minna
skilið en þennan að mér sýnist snilldar þjálfara frá
danaveldi.
Annað skemmtilegt við þetta teiti var það að ég varð a bit
tipzy og var hálf syngjandi þegar ég kom heim um miðnætti, hugsið
ykkur hvað maður er orðinn prúður en samt mikill hænuhaus með
árunum, hálf hvítvín og ég var ekki ég..... Ótrúlegt.
Svo er það búið að vera mikið um pizzuát, bíó, sund
og annað gaman saman, Sylvía Sól og Martin Máni þrífast á því að
gera eitthvað öll saman enda það allra besta fyrir börnin manns, að
vera saman og vitiði elskurnar ég met þessar stundir svo óskaplega,
ef maður hefur lent á þeim stað að næstum missa og fá svo annað
tækifæri þá verða momentin manni meira virði en áður en maður
upplifði slík augnablik.......
Hamingjan fellst í því að njóta augnabliksins, með þeim
sem þú dáir og gerir jafnvel ekkert annað en að syngja með silly
song.... Bara njóta.
Vonandi hafið þið
átt glæsilega helgi elskurnar.
Ykkar Alma
Geirdal